Tannlæknastofa

Eitt bros getur dimmu
í dagsljós breytt

Öll almenn tannlæknaþjónusta, tannréttingar og tannfegrun. Fyrir alla aldurshópa.

UM CLINICA

Alhliða tannlæknaþjónusta með áherslu á persónulega og þægilega upplifun.

Við hjá Clinica bjóðum upp á allar almennar tannlækningar og erum einnig í góðu samstarfi við sérfræðitannlækna. Virkt eftirlit er mikilvægt þar sem tennur og munnhol er skoðað, tennur hreinsaðar og veittar eru ráðleggingar varðandi munnhirði og heilbrigði tanna.

Fyrir flesta er heimsókn einu sinni á ári það sem við viljum sjá en sumir þurfa að koma oftar, við metum hvern einstakling fyrir sig. Í reglulegu eftirliti eða í fyrstu heimsókn er gerð áætlun um það sem þarf að gera hvort sem um er að ræða fyllingar í tennur, rótfyllingar, tannholdsmeðferð eða bætt útlit tanna.

Einnig er metin þörf á meðferð sem bætir tyggingargetu þegar eina eða fleiri tennur vantar.

Við leggjum ríka áherslu á forvarnir og að kenna skjólstæðingum okkar góðra munnhirðu svo heilbrigði tanna og tannholds haldist. 

IMG_2257

ÞJÓNUSTAN

Öll almenn tannlæknaþjónusta auk tannréttinga og tannfegrunar
Tannlækningar

Clinica býður upp á allar almennar tannlækningar og erum við einnig í góðu samstarfi við sérfræðitannlækna þegar við á.

Ef þú hefur spurningar eða þarft tannlæknaþjónustu hafðu þá endilega samband.

Barnatannlækningar

Tannheilsa barna er afar mikilvæg og nauðsynlegt að fylgjast reglulega með þróun mála. Þægilegar móttökur og jákvæð upplifun barnanna er okkar markmið.

Tannfegrun

Fallegar tennur eru heillandi og geta verið stór þáttur af okkar sjálfsmynd og hvernig okkur líður. Hjá Clinica bjóðum við fjölbreyttar meðferðir sem tryggja að þú fáir óskir þínar um útlit tannanna uppfylltar. Kynntu þér mismunandi meðferðir og sjáðu hvað gæti hentað þér.

Tannréttingar

Clinica býður upp á frábæra lausn til þess að rétta tannskekkjur á framtannasvæði án þess að þurfa að notast við spangir.

Q&A

Spurningar og svör

þegar kemur að tannlækningum, tannfegrun og öðru sem kemur að tannheilsu fólks koma gjarnan upp spurningar. Við höfum tekið saman nokkrar algengar spurningar og svör. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að hafðu þá endilega samband.

Fullorðinstennur byrja að koma um x ára aldur hjá flestum en það getur verið misjafnt milli einstaklinga

Þegar fullorðinstennur eru fullmótaðar má fara í tannhvíttun. Við mælum með að unglingar sinni tannheilsu af metnaði og haldi þannig ljósu yfirbragði tanna með náttúrulegum hætti.

Nei þess þarf ekki alltaf. Nú er möguleiki á að nota skinnur fyrir minni tannréttingar.

Með nútíma tannlækningum er mögulegt að setja skinnur á tennur bæði til að ná þeim lit sem fólk vill og eins til að mæta ýmsum öðrum atriðum líkt og litlum brotum neðan af framtönnum og eða eyðingu.

HAFÐU SAMBAND

Bókaðu tíma eða fáðu frekari upplýsingar

TÖLVUPÓSTUR: mottaka@clinica.is

SÍMI: 554 2122

BÆJARLIND 6 | 201 KÓPAVOGUR