Nýjar tennur
Tannplantar
Tannplanti er skrúfa úr titanium málmi sem grætt er í kjálkabein þegar tönn eða tennur hafa tapast. Við höfum yfir 20 ára reynslu við að meðhöndla skjólstæðinga með tannplöntum, ýmsit sem stuðningur við eina tannkrónu, brýr eða undir stærri föst og laus tanngerfi. Rannsóknir sýna að lífsgæði tannlausra einstaklinga aukast til muna þegar tannplantar eru notaðir sem stuðningur undir heilgóma
Við notumst einungis við svissneska Straumann tannplantakerfið sem er eitt þriggja stærstu vörumerkja á þessum markaði og ekkert kerfi er eins mikið rannsakað. Lífstíðar ábyrgð er á tannplömtum frá Straumann
Krónur
Tannkrónur úr málmlausum efnum er hulsa sem sett er yfir tönnina og límd með sterku lími. Þetta er gert þegar bæta þarf brotnar eða mikið viðgerðar tennur til að viðhalda góðu útliti og tryggja að tönnin undir þoli það álag sem sett er á hana.
Skelkrónur
Skelkrónur eru þunnar postulíns skeljar sem aðallalega eru hugsaðar til að bæta útlit framtanna, þarfnast ekki mikils tannskurðar og eru límdar með séstöku plastlími.
Við notum okkur tæknina og getum boðið upp á bros-hönnun (e. Smile design) áður en meðferð hefst en þá gefst fólki kostur á að sjá myndrænt hvernig brosið kemur til með að líta út.
Þessi leið er mun þægilegri fyrir sjúkling og einfaldar allt ferlið þar sem gögn eru send rafrænt beint til tannsmiðs.
