Tannhirða
Tannhirða er afar mikilvæg líkt og flestir gera sér grein fyrir. Það er nauðsynlegt að fylgjast með nýjungum á því sviði og láta fylgjast með ástandi.
Munnskol
Hægt er notast við munnskol til að viðhalda heilbrigði í munnholinu. Bakteríudrepandi munnskol virka vel á bólgur í tannholdi eða eftir aðgerðir í munni, einnig eru til munnskol sem leysa upp tannsýkluna sem situr á tönnum. Svo eru það munnskol með fluor sem styrkja glerungin og minnk líkur á tannskemddum.
Tannholdssjúkdómar
Tannholdsjúkdómar kallast það þegar stoðvefir tanna, tannhold og bein tapast. Orsökin er yfirleitt slæm munnhirða og óreglulegt eftirlit hjá tannlækni. Þegar tannsýkla og/eða tannsteinn fá að safnast upp óáreitt þá ná bakteríur sér á strik og bólgur myndast í tannholdi sem verður oft aumt og blæðandi Tannholdið verður aumt og bólgið og það blæður auðvellega út þvi.
Ef ekkert er aðhafst getur þetta ástand valdið því að bein tapast við tennur og tennurnar missa þar með stöðuleika og geta farið að losna.
Reykingar er stór áhættuþáttur fyrir tannholdssjúkdómum, reykingar minnka verulega eðlilegt blóðflæði í slímhúð og minnka þannig varnir líkamans til að breðgðast við.
