Tannfegrun
Léttar tannréttingar
Clinica býður upp á frábæra lausn til þess að rétta tannskekkjur á framtannasvæði án þess að þurfa að notast við spangir.
Meðferðin er byggð upp með glærum skinnum sem notaðar eru í 22 tíma á sólahring í 7-10 daga í senn og svo ný skinna í næstu 7-10 dag og skipt um þangað til tilætluðu útliti er náð. Meðferð getur tekið 10 – 24 vikur, allt eftir því hversu mikið þarf að breyta.
Tannhvíttun
Margar ástæður geta verið fyir því að litur tanna er óviðunandi. Tennur dökkna með aldrinum, tennur sem verða fyrir áverka geta dökknað, rótfylltar tennur eiga það til að dökkna og svo er nátturulegur litur tanna mismunandi eftir einstaklingum.
Skelkrónur
Skelkrónur eru þunnar postulínsskeljar sem aðallalega eru hugsaðar til að bæta útlit framtanna, þarfnast ekki mikils tannskurðar og eru límdar með séstöku plastlími.
Við notum okkur tæknina og getum boðið upp á bros-hönnun (e. Smile design) áður en meðferð hefst en þá gefst fólki kostur á að sjá myndrænt hvernig brosið kemur til með að líta út.
ÞRÍVÍDDARSKANNI
Fullkomin hönnun fyrir þig
Við notum nýjustu tækni við gerð tanngerfa en í flestum tilfellum er notast við þrívíddar skanna. Sem er mun þægilegra fyrir sjúkling og sendir gögn rafrænt beint til tannsmiðs.

