Tannlækningar

Clinica býður upp á allar almennar tannlækningar og erum við einnig í góðu samstarfi við sérfræðitannlækna þegar við á.

Ef þú hefur spurningar eða þarft tannlæknaþjónustu hafðu þá endilega samband.

Fyrirbyggjandi aðgerðir

Reglulegt eftirlit

Við viljum fá alla til þess að koma í reglulegt eftirlit þar sem tennur og munnhol er skoðað, tennur hreinsaðar og veittar eru ráðleggingar varðandi munnhirðu og heilbrigði tanna.

Fyrir flesta er heimsókn einu sinni á ári það sem við viljum sjá en sumir þurfa að koma oftar, við metum hvern einstakling fyrir sig.

Í reglulegu eftirliti eða í fyrstu heimsókn er gerð áætlum um það sem þarf að gera hvort sem um sé að ræða fyllingar í tennur, rótfyllingar, tannholdsmeðferð eða bætt útlit tanna. Einnig er metin þörf á meðferð sem bætir tyggingargetu þegar eina eða fleiri tennur vantar.

Ef eitthvað þarf að laga

Tannviðgerðir

Þegar gera þarf við tennur eða skipta út gömlum fyllingum notum við hvít tannlituð fyllingarefni til að líkja sem best eftir töpuðum tannvef.

Tannhold og tennur

Tannholdsmeðferð

Heilbrigt tannhold er ekki síður mikilvægt en heilbrigðar tennur. Því er nauðsynleg að passa vel uppá að hreins tannstein sem getur safnast á tennur og valdið bólgum í tannholdi sem getur minnkað festu tanna í beininu.

Ef eitthvað kemur fyrir

Tannáverkar

Ef tennur verða fyrir áverka er mjög mikilvægt að komast í sambandi við tannlækni sem fyrst, hvort sem um er að ræða högg á tennur, brot eða að tönn detti úr tannstæði sínu.

Ef tönn fellur úr munni er nauðsynlegt að koma henní fyrir í tannholunni innan 30 mínutna. Ef geyma þarf ton utan munnhols er best að geyma hana í saltvatni. Ef því verður ekki viðkomið er næstbest að geyma tönnina í mjólk og þriðji kosturinn að geyma tönnina í rökum klút. 

Forðast skal að láta tönnina þornautan munnhols.

Þegar ekki verður hjá því komist

Tannúrdráttur

Ýmsar ástæður eru fyrir því að draga þurfi tennur.

Mikið skemmdar eða sýktar tennur sem ekki er hægt að meðhöndla þarf oftast að draga.

Endajaxlar sem ekki komast upp vegna legu eða plássleysis

Barna og fullorðinstennur gæti þurft að fjarlægja sem hluta af tannerttingarmeðferð

Barnatennur sem ekki ná að losna á eðlilegan hátt.

Þegar á þarf að halda

Rótfyllingar

Í reglulegu eftirliti eða í fyrstu heimsókn er gerð áætlum um það sem þarf að gera hvor sem um sé að ræða fyllingar í tennur, rótfyllingar, tannholdsmeðferð eða bætt útlit tanna. Einnig er metin þörf á meðferð sem bætir tyggingargetu þegar eina eða fleiri tennur vantar  taka út og setja þetta í staðinn

Ef fjarlægja þarf taugavefin sem er inn ií öllum tönnum þarf að framkvæma rótfyllingarmeðferð. Slík meðferð krefst yfirleitt tveggja eða fleiri heimsókna.